....sem er reyndar líka í fyrsta sinn sem ég
bloggaði
þá er ég búin að gera ýmislegt – og allt skemmtilegt
!!
Ég er búin að fara til London í helgarferð með góðum
vinum. Skímó var að spila á þorrablóti Íslendingafélagsins í London
og gerðu það með stakri prýði I might add
Í þetta skiptið
var mökum boðið með (hóst,hóst – smá biturleiki lak hér í gegn og
ég biðst afsökunar ..hehehehe) Við gistum á fínasta hóteli í
Kengsington, fórum á fimmtudag og komum heim seint í gærkvöldi svo
við náðum alveg 4 heilum dögum nánast. Það var verslað, borgin og
safn skoðuð, sofið og borðað og farið í underground !! Mikið var
gott og gaman …það er svo gott að geta notið þess að vera í
útlöndum með góðu fólki og njóta þess að vera til !! Svo ég tali nú
ekki um hversu æðislegt mér fannst að vera í útlöndum með
kærastanum mínum. Nýti hvert tækifæri núna til að tala um hann sem
kærasta
– styttist í að hann verði eiginmaður minn og þá er
hætt við að ég fullorðnist aðeins …hehehe Og fyrir ykkur sem eruð
að velta því fyrir ykkur – þá stóð hann sig eins og hetja. Ótrúlega
duglegur og tókst á við áskorunina á magnaðan hátt. Veit ekki hvort
okkar er meira stolt !!
En ég náði nú líka að gera fleira síðan ég bloggaði
síðast …því jú eins og ég talaði um þá var hér mátun á einum
ákveðnum kjól síðastliðinn þriðjudag (vona að það sé ekki ávísun á
hvernig þetta blogg mitt mun ganga að ég sé ekki búin að segja frá
því ennþá ) en allavega ….þá gekk mátunin rosa vel – þær voru
hrifnar og öllum leist vel á og þar á meðal mér !! Er eiginlega
bara í skýjunum með kjólinn og gæjann sem saumar hann
Elsku Ingó
minn er sem sagt að sauma kjólinn og hann er snillingur !! Ekki
bara í að sauma kjól – heldur líka bara í lífinu og sem vinur !!
Hann er æði bræði and I love him long time !!!
Jæja ..hvað gerði ég fleira ??
Jú,eða reyndar gerði ég ekki neitt en ég upplifði
svolítið skrýtna tilfinningu. Þar sem ég sat í rólegheitunum að
fletta Fréttablaðinu í vélinni á leiðinni heim í gærkvöldi og var á
síðustu síðunni – glöð því þá ætlaði ég að halla mér aftur og
leggja mig svolítið – þá rak ég augun í grein sem sló mig aðeins út
af laginu
Það fylgir nú starfsgrein Gunnars að fjölmiðlar
séu að hnýsast aðeins í einkamál hans og bjóst ég svo sem alveg við
að einhvers staðar myndi koma fram hvað stendur til en þar sem við
höfum sloppið svo ótrúlega vel við áhuga fjölmiðlamanna-og kvenna á
okkar persónulega lífi – enda ekki viljað annað – þá fékk þetta
aðeins á mig. Ég tók mér smá stund í að vera sár og gröm og reið en
þar sem ég ræð því sjálf hvað ég er lengi þar
þá ákvað ég að
eyða ekki löngum tíma í það. Þetta er samt held ég í fyrsta sinn á
rúmum 9 árum í sambandi mínu við Gunnar sem mér finnst að mér vegið
og er það nú bara nokkuð gott myndi ég segja. Fékk mig til að hugsa
um fólkið sem snýr sér ekki við án þess að allir viti af því – ef
þetta lítilræði stuðar mig þá finnst mér ekkert skrítið að sumir
taki sig til og ráðist á og kæri og annað. Ekki það að sumir svo
sem kalla hlutina yfir sig og vilja þessa athygli og þurfa á henni
að halda en svo eru aðrir sem eru mjög successful sem sleppa alveg
….hmmmm, hvað ætli valdi því ?? Ætli fólk sé mis áhugavert eða ætli
við ráðum þessu að einhverju leyti sjálf ?? …tja …??
En jæja, nú er næst á dagskrá að taka upp úr töskunum
allt fíneríið frá útlandinu og fara yfir reikningsstöðuna upp á
nýtt
!! Hætt við því að það verði núðlur og spagettí með
tómatsósu á boðstólum á þessu heimili næstu daga
!!
Ég á enn eftir að koma inn sögunni af
fluffu-gæsa-sumarbústaðar-kálfa sögunni and she´s coming right up
so stay tuned 
Yours truly,
Þóra
p.s ég er búin að vera fá fullt af skrýtnum sms-um
síðastliðna daga …mjög skemmtilegt og er gaman að spá í frá hverjum
þau séu – koma öll í gegnum siminn.is eða vodafone.is …hehehehe
…þið eruð skemmtilegar !!!